Kaup- og afhendingarskilmálar

Kaup- og afhendingarskilmálar

1. Almenn skilmálar

Þessir skilmálar gilda um öll kaup sem gerð eru í vefverslun Kúrekans á vefslóðinni vefverslun.kurekinn.is.
Með því að leggja inn pöntun samþykkir viðskiptavinur þessa skilmála og skuldbindur sig til að fylgja þeim.

2. Fyrirtæki og samskiptaupplýsingar

Rekstraraðili: Fagrabjarg ehf.
Kennitala: 520825-1850
Heimilisfang: Suðurholt 18
Netfang: fagrabjarg@fagrabjarg.is

3. Verð og greiðslumöguleikar

Öll verð í vefversluninni eru í íslenskum krónum og eru með virðisaukaskatti.
Greiðsla fer fram með greiðslukorti eða öðrum greiðslumöguleikum sem vefverslunin býður hverju sinni.
Pöntun telst fullgild þegar greiðsla hefur borist og staðfesting á pöntun send í tölvupósti.

4. Afhending og sendingarkostnaður

Vörur eru sendar innanlands með Íslandspósti næsta virka dag eftir móttöku greiðslu.
Sendingarkostnaður bætist við í lok kaupferlisins og er sýndur áður en greiðsla fer fram.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að gefa upp réttar sendingarupplýsingar ásamt símanúmeri við pöntun.
Vörur eru einnig afhentar á lögheimili félagsins í Hafnarfirði eða í Reykjanesbæ, valmöguleikar um slíkt birtast við pöntun.

5. Skil og endurgreiðsla

Kaupandi hefur rétt til að hætta við kaup innan 14 daga frá móttöku vöru, að því gefnu að varan sé ónotuð, óskemmd og í upprunalegum umbúðum.
Kjósi kaupandi að skila vöru skal það tilkynnt á netfangið fagrabjarg@fagrabjarg.is innan 14 daga frá móttöku vöru. Enn fremur skal vara endursend innan 14 daga frá tilkynningu um skil.
Kaupandi ber kostnað af sendingu við skil nema varan hafi verið gölluð eða röng.
Endurgreiðsla fer fram þegar varan hefur borist og verið skoðuð.

6. Gallaðar eða rangar vörur

Ef vara reynist gölluð eða röng við afhendingu skal hafa samband við fyrirtækið á netfangið fagrabjarg@fagrabjarg.is án tafar.
Ef um gallaða vöru er að ræða verður ný vara send eða endurgreidd eftir samkomulagi.

7. Persónuvernd

Áhersla er lögð á öryggi persónuupplýsinga.
Allar upplýsingar sem safnað er við kaup eru eingöngu notaðar til að afgreiða pöntunina og viðhalda þjónustu.
Upplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila nema samkvæmt lagaskyldu.

8. Ábyrgð og fyrirvari

Áhersla er lögð á að allar vörulýsingar séu réttar, en áskilinn er réttur til breytinga á verði, birgðastöðu og villum í texta eða upplýsingum án fyrirvara.
Ekki er borin ábyrg á seinkunum í sendingu sem stafa af aðstæðum sem við ráðum ekki við (t.d. veðri eða flutningstruflunum).

9. Lög og varnarþing

Um viðskipti við Fagrabjarg ehf. gilda íslensk lög.